Auglýsing

Auja hundanörd

  • Netfang: auja83@gmail.com

Affietude Afghan Hound

Tíbráar Tinda Tibetan spaniel og Labrador Retriever

Unglingadeild HRFÍ

Mjóhundadeild HRFÍ

Hundaræktarfélag Íslands

Könnun

Ætlar þú á World Dog show í Stokkhólmi sumarið 2008?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

ISCH Punapaulan Yasmin :)

03. október 2008 klukkan 22:17
Halló halló-blogg segiði? Úff...ég er engan veginn að standa mig í "bloggeríinu"...

En ég skal reyna að skrifa einhverjar fréttir fyrir ykkur. Ég á eflaust eftir að gleyma einhverju þar sem mjög langur tími er liðinn síðan síðasta blogg var "sett á blað".

Ég hætti að vinna á leikskólanum 26. ágúst og þann 28. skelltum við Gassi okkur til Costa del Sol í eina viku sem var ÆÐI :) Verst hvað evran var há á þeim tíma-reyndar bara peanuts miðað við það sem hún er í dag! Við gistum á Aquamarina, sama hóteli og í útskriftarferðinni árið 2003. Veðrið var æðislegt allan tímann og höfðum við það alveg svakalega gott.
Eftir að við komum heim byrjaði skólinn og er búið að vera nóg að gera! Ótrúlega gaman að fara aftur í skólann og hitta stelpurnar. Milla er reyndar farin í guðfræði og Lana er í kvikmyndaskólanum en samt skráð í 2 fög, þannig að við Jóna Kristín erum bara aleinar! En við skemmtum okkur vel saman ljóskurnar :)

Það gengur alveg svakalega vel með hvolpaskottin mín og eru allir hæstánægðir, bæði eigendur og hundar :) Við Díva byrjuðum í hvolpaskólanum í ágúst. Hún er alveg svakalega dugleg og ótrúlega fljót að læra. Allir hinir gormarnir byrjuðu líka í hvolpaskólanum en Valiant og Aldo Cavalli slösuðu sig og þurfa því að fara seinna á námskeið :( Valiant byrjaði á því að brjóta lítið bein í framfætinum þegar hann var að leika við Safír bróður sinn. Aldo reif vöðva og liðpoka í framfætinum. Algjörir hrakfallabálkar þessir ömmudrengir. En þeir eru báðir á góðum batavegi enda eiga þeir eigendur sem gera ALLT fyrir þá.

Septembermánuður var "all about dogshows" en Mjóhundadeildin stóð fyrir Opinni sýningu helgina fyrir alþjóðlegu sýningu HRFÍ. Yvonne Ljungquist frá Svíþjóð var fengin til að dæma fullorðnu hundana og Afghan hvolpana en Monika Karlsdóttir dæmdi restina af hvolpunum. Tegundum úr grúbbu 2 og íslenska fjárhundinum var boðið að vera með á sýningunni. Yvonne hefur ræktað Afghana í tugi ára og er með svakalega reynslu af tegundinni. Henni leist alveg svakalega vel á hvolpana mína en 4 af þeim voru sýndir þau Affietude King of Pride Rock "Safír", Affietude Hakuna Matata "Valiant", Affietude Standing in the Spotlight "D'iva" og Affietude It´s Magic Everywhere "Kiara". Þau fengu öll heiðursverðlaun og vann Díva hvolpana og varð 2. besti hvolpur sýningarinnar! Safír vann strákana og tapaði svo fyrir systur sinni í keppninni um besta hvolp tegundar. Yvonne skoðaði líka Aldo Cavalli og fannst hann alveg svakalega lofandi. Chelsea vann svo Afghanana og endaði svo sem Besti hundur sýningar!!!! Ég er ekkert smá stolt af prinsessunni minni og ótrúlega ánægð að svona virtur og reyndur ræktandi finnist Spelsíin mín svona fín :) Engin meistarastig eða neitt slíkt voru í boði á Opnu sýningunni enda eru Opnar sýningar til þess gerðar að vera hálfgerðar "æfingasýningar" fyrir hunda. Hér eru nokkrar myndir frá sýningunni
http://picasaweb.google.com/auja83/OpenShow2008#

Helgina eftir Opnu sýninguna, eða síðustu helgi, var haustsýning HRFÍ. Madelene Thorman, Afghan eigandi frá Svíþjóð, var boðið að dæma unga sýnendur og gisti hún hjá mér frá fimmtudegi til þriðjudags. Hún á m.a. eina fallegustu Afghan tík sem ég hef séð Multi Ch. Gengala Just Like That (
www.jawahar.se)  Á föstudeginum skelltum við okkur í Bláa Lónið og hefðum þess vegna getað skellt okkur á brimbretti-svo mikið var rokið og öldugangurinn! En henni fannst þetta bara cool og exotic! Svo seinna um daginn var komið að því að dæma unga sýnendur og stóðu krakkarnir sig alveg svakalega vel, bæði í yngri og eldri flokki. Eftir að úrslit ungra sýnenda í eldri flokki voru kunn gátum við séð hvaða 4 ungu sýnendur voru stigahæstir eftir árið og skipuðu landslið ungra sýnenda. Þorbjörg Ásta var stigahæst, önnur varð Ágústa, þriðja Guðrún Dögg og fjórða Hildur Sigrún. Frábært lið í alla staði og skellum við okkur út til Danmerkur í nóvember til að keppa í Norðurlandakeppni ungra sýnenda. Theodóra varð svo stigahæst í yngri flokki. Innilega til hamingju með flottan árangur stelpur!
Á laugardeginum var svo komið að Labrador og Afghan. Ég byrjaði daginn á að sýna Tíbráar Tinda Tígurinn Tuma fyrir Önju Björgu og pabba hennar og gekk okkur ljómandi vel. Hann varð í 2. sæti í opnum flokki með excellent! Svo var komið að því að sýna Lólu bólu sem varð í 2. sæti í sínum flokki. Ég sýndi svo Serenu Sól fyrir Berglindi sys sem er með risastóra bumbu :) Það gekk framar öllum vonum og varð Serena besti hundur tegundar af um 57 löbbum með meistarastig og cacib! Hún gerði sér svo lítið fyrir og varð í 3. sæti í grúbbu 8 :) Seinna um daginn var svo komið að Afghan og var ég mjög spennt að sjá hvernig ömmu-börnunum mínum myndi ganga. Díva, Kiara, Valiant og Safír voru sýnd og fengu öll heiðursverðlaun!! Díva vann Kiöru og Safír vann Valíant og svo vann Safír systur sína í keppninni um besta hvolp tegundar :) Þau stóðu sig öll alveg svakalega vel og voru ömmu sinni til mikils sóma! Svo var komið að Chelsea og varð hún besta tík tegundar með sitt 3. meistarastig og 3. cacib! Ég var alveg hrikalega ánægð að fá á hana síðasta meistarastigið þannig að núna bíðum við eftir staðfestingu á ISCH titlinum! Hún keppti svo við Dorian hennar Sunnívu um besta hund tegundar. Dorian prins vann og varð svo í 1. sæti í grúbbu 10 og endaði svo á sunnudeginum sem BIS 3! Innilega til hamingju með drenginn Sunníva!!! Öllum Afghönunum gekk vel á sýningunni :)
Á sunnudeginum var komið að Tíbbunum og var Tíbrá besti hundur tegundar og endaði í 2. sæti í grúbbu 9 á eftir honum Erró Papilloninum hennar Írisar (sem á Aldo Cavalli). Erró endaði svo sem besti hundur sýningar 2! Innilega til hamingju með Erró elsku Íris! :) Tamino, næstum 11 ára kóngur, gerði sér lítið fyrir og varð besti rakki tegundar og besti öldungur sýningar! Fígó varð besti rakki 2 með sitt 4. cacib og verður sótt um INT CH titilinn hið snarasta! :)
Vægast sagt frábær árangur og æðisleg sýning í alla staði :) BIS var st. Bernardinn hennar Guðnýjar hann Kevin BIS2 Erró BIS 3 Dorian Afghan og BIS 4 Aussie. Innilega til hamingju allir með æðislega sýningu!
Hér eru myndir frá sýningunni
http://picasaweb.google.com/auja83/HaustsNingHRF2008InternationalAutumnShow2008#

Á mánudeginum skelltum við Madde okkur á Gullfoss, Geysi og Þingvelli og var veðrið frábært! Sól og blíða og hauslitirnir voru geggjaðir! Madde var ótrúlega ánægð með þetta og um kvöldið hélt hún svo námskeið fyrir ungu sýnendurna. Hún fór svo heim til Svíþjóðar á þriðjudaginn.
Ég er búin að vera alveg ótrúlega þreytt eftir þessa hundatörn og gestatörn og er svona rétt að ná mér núna almennilega :)  

Nú fer að styttast í Nordic winner í Danmörku og erum við að fara að byrja að æfa fyrir keppnina. Svo fer ég til Finnlands um miðjan desember að dæma Finnska finalinn í ungum sýnendum. Skemmtilegir tímar framundan og ekki má gleyma því að Berglind sys fer svo að punga út eins og einni frænku eða frænda í byrjun nóvember! :) Hver veit nema hann/hún komi á 30 ára afmælisdaginn hans Gassa þann 7. nóvember!?  Ég er allavega orðin svakalega spennt að verða stóra frænka í 4. sinn!

Jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég dáist að öllum þeim sem nenntu að lesa þetta langa stranga blogg. Ég og Anja Björg ætlum svo að fara að uppfæra Affietude síðuna
www.tibraartinda.com/chelsea á allra næstu dögum! Endilega kíkið :)

Later!
Auður Sif Sigurgeirsdóttir
9 athugasemdir

Til hamingju Ásta María og Binni :)

10. ágúst 2008 klukkan 01:14
Mig langar að byrja á að óska Ástu Maríu minni og Binna innilega til hamingju með hvort annað en þau giftu sig föstudaginn 8.8.08 í Fríkirkjunni í Reykjavík :) Ég byrjaði náttúrulega að grenja um leið og Ásta gekk inn kirkjugólfið með pabba sínum. Úff...ég er alveg hrikalegur aumingi þegar kemur að brúðkaupum-tala nú ekki um þegar það er einhver sem manni þykir svona hrikalega vænt um!! Athöfnin var æðisleg. Fyrst komu allir hundarnir inn kirkjugólfið-Diesel og Ollie með Karenu og Ægi, bróður Binna, og hinir hundarnir í kerru. Bara sætast!! Sjónvarpið var á staðnum og tók myndir af þessu öllu saman. Svo var Chandler, púðlinn þeirra, hringaberi og kom með hringana til þeirra. Það var svo sýnt í fréttunum ásamt kossinum hjá þeim brúðhjónum :) Veislan var svo haldin í sal FÍH minnir mig að hann heiti. Geggjaður matur, humarsúpa í forrétt, steikarhlaðborð í aðalrétt (kjúlli-innbökuð nautalund-svín) og svo dumle kaka í eftirrétt. NAHAMM! Æðislega vel heppnaður matur! Svo voru geggjað skemmtileg atriði og ræður og alls konar video sýnd :) Ótrúlega gaman að sjá þetta. Ég og Gigja héldum saman ræðu sem allir voru mjög lukkulegir með og ættingjar Binna töluðu um að hafa kynnst nýrri hlið á Ástu eftir ræðuna...hmmmm :) hehehehe
En þetta var æðisleg veisla :) Við gáfum þeim rosalega flottan Philips blandara og svo var ég búin að láta mála málverk fyrir þau með Ollie, Diesel, Chandler og 2 Papillonum sem þau fá eftir helgi. Það var ekki komið til landsins fyrir brúðkaupið og prentaði ég bara út mynd af því og lét fylgja með pakkanum svo þau gætu séð hvernig það er :) Þau eru ekkert smá spennt að fá það! Það er komið og ég get náð í það á póstinn á mánudaginn! Jibbí! Ég fór svo í dag til þeirra að horfa á þau opna pakkana :) Þvílíkt og annað eins MAGN!

En já, þetta var sem sagt brúðkaupið. Helgina fyrir Verslunarmannahelgina var Ásta gæsuð. Við byrjuðum á því að hittast heima hjá mömmu hennar Ástu í morgunmat og klæddum Ástu í Bangsímon búning og sundbol yfir. Gerðum svakalega flotta hárgreiðslu í hana og teiknuðum á hana skegg og skrifuðum "gæs" á kinnarnar :) hehe Svo kom Óli Haukur sem var með okkur í barnaskóla og sótti hana á krossaranum sínum og brunaði með hana rétt hjá Rauðavatni og skildi hana eftir á afleggjaranum að hjólkoppasölunni þar sem hún þurfti að stoppa bíl og fá að hringja í okkur svo við gætum sótt hana. Það tókst hjá henni eftir ca. 4 tilraunir og við sóttum hana og brunuðum svo austur í River rafting sem var GEÐVEIKT!!!! Við stukkum allar niður af 7 metra háum kletti ofan í ána og úff...það var svakalegt!!! Ég hef sjaldan verið jafn stolt af mér! hehehe :) Svo eftir river rafting skelltum við okkur aðeins í pottinn og gufu og svo var planið að skella sér í sumó á Þingvöllum og grilla og svona. En planið breyttist aðeins...við vorum á 2 jeppum og Kría, Kristín, Halldóra og lillinn hennar Kríu voru aðeins á eftir okkur. Allt í einu öskrar Ásta María og sér jeppann þeirra velta út af veginum ofan í skurð. Við fengum þvílíkt sjokk og stukkum úr bílnum og hlupum að jeppanum en stelpurnar voru allar fastar inni í bílnum. Við náðum að opna fyrir þær og sem betur fer voru þær allar ómeiddar nema Halldóra sem var viðbeinsbrotin :( Við biðum alveg heillengi eftir sjúkrabíl og löggunni sem loksins komu svo. Við ákváðum að skella okkur á Þingvelli þar sem enginn var alvarlega slasaður en stelpurnar ákváðu að koma ekki enda allar í þvílíku sjokki eftir slysið. Við vorum líka allar alveg eftir okkur eftir þetta allt saman en höfðum það gott í bústaðnum og gistum yfir nóttina. Átum gjörsamlega yfir okkur af grilluðum kjúlla, nammi og snakki...úff púff! hehehe :) En þetta var vel heppnuð og skemmtileg gæsun þrátt fyrir óhappið :)

Helgina eftir að við komum heim frá Svíþjóð var mjóhundagrill rétt hjá Grindavík og ég skellti mér með Dívu og Glóa (sem núna heitir Valíant). Birna, vinkona hennar Stefanie, sem á Safír bróður þeirra, varð alveg yfir sig hrifin af Glóa sætasta og dreymdi hann í 2 nætur á eftir!! Hann sótti alveg rosalega í hana og vildi alltaf vera hjá henni :) Svo hringdi hún í mig og sagðist hafa heyrt hjá mér í göngunni að ég væri að spá í að co-owna hann og vildi athuga hvað það þýddi o.s.frv. Þetta endaði sem sagt á því að við ákváðum að eiga drenginn saman, en Valíant býr núna hjá Birnu og fjölskyldu (eiginmaður og 2 börn-stelpa 3 ára og strákur 7 ára) í góðu yfirlæti. Mér finnst ég hafa verið ofboðslega heppin með hvolpaeigendurna mína :)
Við skelltum okkur öll (nema Nala-hún var úti á landi með fjsk. sinni) í miðbæinn um daginn í umhverfisþjálfunarlabberí sem gekk svakalega vel. Þau voru gjörsamlega ekki hrædd við NEITT í miðbænum og fengu alls konar umhverfisþjálfun. Amma ekkert smáááá stolt af yndunum sínum :) Við erum svo að fara að byrja á hvolpanámskeiði næsta mánudag! Jibbí! Svo byrjar sýningarþjálfun á vegum Unglingadeildarinnar í kvöld kl. 18-19 (ungir sýnendur) og 19-20 (almenn þjálfun).

En jæja..ætla ekki að hafa þetta lengra í bili enda alveg búin að skrifa nóg :) hehehe

Hafið það gott!!

Ps. Setti inn myndir af gormunum á picasa albúmið http://picasaweb.google.com/auja83/34MNaA34Months




Auður Sif Sigurgeirsdóttir
4 athugasemdir

Heimssýningin og fleira skemmtilegt :)

17. júlí 2008 klukkan 22:45
Halló halló allir saman! Hvað segið þið svo gott? Ég er bara góð skal ég segja ykkur enda ný komin heim frá Svíþjóð og það var ógeðslega gaman! :)

Ég veit að ég er hrikalega léleg að blogga...en ég nenni varla að blogga þegar ég hef eiginlega ekkert að segja. En núna hef ég svo sem eitthvað til að tala um...

Það gengur svakalega vel með alla hvolpana hjá nýju eigendunum sínum og allir að dafna vel. Ég fór með Dívu og Glóa til dýralæknis í gær og þeim fannst það geggjað gaman. Ótrúlega opin bæði tvö og fannst sko ekkert lítið gaman að fá svona voðalega fínan dýralæknamat og nammi hjá dýra. Þau löbbuðu þarna um staðinn eins og þau ættu pleisið með skottin sín beint upp í loft. Algjöööör! Þau voru að fá 3. parvó sprautuna sem inniheldur líka bóluefni gegn lifrarbólgu. Loksins loksins komið bóluefni við þessari ógeðslegu lifrarbólgu.

Sumarsýning HRFÍ var svo haldin síðustu helgina í júní og gekk okkur svakalega vel. Á laugardeginum sýndi ég Lólu sem fékk excellent og varð í 1. sæti í sínum flokki. Berglind sýndi Serenu Sól sem varð 3. besta tík :) Ég sýndi svo Labrador hvolp fyrir hann Halldór vin okkar í úrslitum um besta hvolp dagsins og hann varð í 4. sæti :)
Á sunnudeginum sýndi ég Tíbrá og mamma sýndi Fígó og urðu þau bestu hundar tegundar 1 og 2. Ég sýndi svo ný innfluttan Pug hvolp sem heitir Mario fyrir þær Kollu og Theodóru og varð hann besti hvolpur tegundar :) Algjört krumpukrútt!
Hann Lance, ameríski cocker spaniel rakkinn hennar Bryndísar varð svo Best in show en Ágústa sýndi hann fullkomlega! Innilega til hamingju með prinsinn Ágústa og Bidda! Annar besti hundur sýningar var írski setterinn Red sem hún Guðrún Dögg sýndi æðislega vel, í 3. sæti varð St. Bernharðshundurinn þeirra Guðnýjar og Hjalta og í 4. sæti varð Chihuahua hundurinn hann Dínó sem er í eigu Danna :) Innilega til hamingju þið öll með æðislegan árangur!

Á miðvikudeginum eftir sýningu var svo haldið af stað til Svíþjóðar þar sem heimssýningin var haldin frá fimmtudegi til sunnudags. Við komum til Sverige um hádegisbilið og að sjálfsögðu var haldið í búðirnar um leið og við vorum búnar að koma okkur fyrir á hótelinu okkar, Quality hotel Prince Philip. Það var stærðarinnar moll í 2 mínútna göngufjarlægð frá hótelinu sem var sko ekki slæmt skal ég segja ykkur :) Um kvöldið skelltum við okkur svo í tívolí með slatta af Íslendingum sem var geggjað gaman og var ég, aldrei slíku vant, frekar hugrökk í tækjunum! Skellti mér í alls konar scary tæki þó ég hafi látið fallturninn eiga sig...langaði helst ekkert að deyja úr hræðslu í honum!
Daginn eftir var farið á fætur frekar snemma en samt sem áður var engin spes tegund sem við ætluðum að fylgjast með. Við notuðum morguninn til að þræða alla básana og keyptum það sem við þurftum og jafnvel aðeins meira til-huhumm, kemur á óvart ;) Svo horfðum við á íslensku ungu sýnendurna gera það svakalega gott í ungum sýnendum! Þær Guðrún Dögg, Sóley Ragna, Sunneva og Sara voru allar að keppa og gekk svakalega vel. Guðrún Dögg náði þeim geggjaða árangri að vera meðal þeirra þriggja bestu þennan dag í svakalegri samkeppni þannig að þar af leiðandi fékk hún keppnisrétt í semi-finalnum sem var haldinn á sunnudeginum. Geggjaður árangur hjá Guðrúnu sem sýndi enskan springer spaniel. Mér leið eins og stoltri mömmu þegar hún komst áfram! :) Eftir sýninguna skelltum við okkur í miðborg Stokkhólms og skoðuðum okkur um og versluðum svolítið :)
Á föstudeginum voru Tíbbarnir sýndir og var Jouko, ræktandinn okkar, að sýna einn rakka og eina tík. Rakkinn fékk vara-cacib og tíkin varð World winner með tíkar-cacibið! Bara geggjuð bæði tvö!
Á laugardeginum stungu allir mig af og fóru á speciality hér og þar í kringum Stokkhólm meðan ég fór á heimssýninguna og horfði á Afghanana sem voru margir hverjir alveg geggjaðir:) Ég hitti Sunnívu og Sídu við hringinn og horfðum við á gormana saman. BOB var tík frá Agha Djari´s ræktuninni í Þýskalandi og vann hún svo grúbbuna seinna um daginn. Hrikalega falleg brindle tík sem átti svo sannarlega skilið að vinna.
Á sunnudeginum horfðum við á íslenska fjárhundinn en Guðrún Guðjóhnsen var að dæma þá. Þorbjörg Ásta sýndi rakka sem er frá Gauju á Arnarstöðum og fékk hann certið og vara-cacib. Linda sýndi Orra sinn sem varð í 3. sæti í opnum flokki. Þorbjörg var svo fulltrúi Íslands í ungra sýnenda finalnum og stóð sig geðveikt vel með Sheltie. Guðrún tók þátt í semi-finalnum og stóð sig vel og komst aðeins áfram en samt ekki alla leið í finalinn. Samt sem áður geðveikur árangur hjá íslensku stelpunum! Svo var komið að úrslitunum og það var sko ekkert grín að fá sæti í stúkunni-það var allt gjörsamlega pakkað!!!! Ungir sýnendur voru fyrstir á svið og vann strákur frá Finnlandi finalinn. Best in show varð svo Sealyham terrier frá USA sem var bara flottur! Í 2. sæti var Pharao hundur sem var top hundur í Svíþjóð 2007. Í 3. sæti varð am.cocker frá Bretlandi og í 4. sæti hálfsystir hans Chandlers, púðlans hennar Ástu Maríu :)

Við lögðum svo snemma af stað til Västerås á mánudagsmorgun en það munaði ca. sekúndubroti að við hefðum misst af rútunni!!! Shit...!! Afghan hound world congressið byrjaði kl. 10 um morguninn og vorum við mamma og Ásta María mættar tímanlega, sem betur fer! Congressið var frábært og lærðum við heilan helling! Göran Bodegård, sighthound specialisti og Kenneth Edh, BIS dómari á heimssýningunni og all rounder, voru með fyrirlestra. Um kvöldið var svo sameiginlegur kvöldverður á veitingastað í miðbæ Västerås. Daginn eftir hélt svo congressið áfram og endaði svo um kvöldið með kvöldverði á Víkingaslóðum. Við fórum í klukkustundar bátsferð þar sem víkingar tóku á móti okkur. Svo borðuðum við í víkingaskála. Þetta var svakalega skemmtilegt :)
Á miðvikudeginum fórum við svo til Önnu og Steinars. Anna kom að sækja okkur til Västerås og svo skelltum við okkur í miðborg Stokkhólms og héldum áfram að versla-enda komnar á ágætis æfingu bara! Til hvers að hætta þegar maður er kominn í form!!?? ;) Svo buðum við þeim Steinari út að borða um kvöldið á ítalskan veitingastað í Uppsala. Á fimmtudeginum þurfti Anna svo að fara á sýningu með ræktandanum sínum og fórum við með henni í SKK (sænska kennel klúbbinn) þar sem hún var að sækja tík sem átti að fara með þeim á sýninguna. Steinar skutlaði svo Önnu til Eskilstuna og skildi okkur eftir í einhverjum voðalega fínum bæ þar sem við versluðum meira :) Svo sótti hann okkur á bakaleiðinni og eldaði svo fyrir okkur um kvöldið svakalega gott grillkjöt :) namm namm! Við gistum sem sagt hjá þeim í 2 nætur og fórum svo aftur á föstudeginum til Västerås þar sem sighthound sýningarnar voru haldnar, en Steinar var svo almennilegur að skutla okkur :) Á leiðinni stoppuðum við í stærstu nammibúðinni í Svíþjóð og misstum okkur aðeins þar....huhumm!
Þegar til Västerås var komið tékkuðum við okkur inn á hótelið okkar sem var staðsett í miðborginni, buðum Steinari að éta með okkur og fórum svo að skoða okkur um í borginni og ég er ekki frá því að við festum kaup á hinu og þessu...:) Steinar var ekki lengi að forða sér aftur til baka þegar hann sá að planið okkar var að þramma um borgina og reyna að finna eitthvað girnilegt til að kaupa! Á laugardeginum og sunnudeginum var svo sighthound speciality báða dagana og var heill hellingur af fallegum hundum sýndur! Við hittum fjöldann allan af frábæru Afghan fólki meðal annars Claire og Liz Millward sem eiga Alouann ræktunina www.alouann.com Ég fór með þeim að tjútta á laugardagskvöldið meðan að mamma og Ásta voru sofandi heima á hóteli. Mamma vaknaði svo seinna um kvöldið og dó næstum úr áhyggjum þar sem ég svaraði ekki í símann minn (heyrði ekki í honum fyrir tjútt-tónlistinni og var ekkert að pæla að kíkja mikið á hann). Mamma, við það að deyja úr áhyggjum, sendi Ástu greyið út að leita að mér!!!! hahaha :) Ásta greyið, ný vöknuð og mygluð, þrammaði um bæinn í leit að klikkuðu vandræðagemsa vinkonunni sinni og leitaði í öllum skúmaskotum og dimmum sundum að mér en allt kom fyrir ekki. Ég var að sjálfsögðu mjög upptekin á dansgólfinu að dansa við bresku vinkonurnar mínar en ekki alein og yfirgefin í dimmu húsasundi...:)

Hérna erum við í ofur stuði :)
Síðasta kvöldið fórum við svo allar saman út að borða með Claire og Liz og nokkrum breskum Afghan konum :) Ég er svo að fara að sýna svaka flotta tík á Crufts fyrir þær sem er undan mínum heittelskaða Aladin sem vann rakkana á Crufts 2006! Get ekki beðið! :)
 
Svo á mánudeginum var haldið heim á leið til Íslands eftir ótrúlega vel heppnaða og skemmtilega ferð :) Það var ekkert smá gaman að koma heim til voffanna og knúsa þá í klessu!

En jæja...ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Fer að taka almennilegar myndir af gormunum sem eru þessa dagana með ofur leggi og byrjaðir að fá apaskegg :)

Takk allir fyrir frábæra ferð!!!

Auja-over and out!
Auður Sif Sigurgeirsdóttir
6 athugasemdir

Ömmubörnin farin að tínast að heiman...

03. júní 2008 klukkan 23:50
Já, litlu ömmubörnin mín eru farin að tínast að heiman, eitt af öðru. Aldo fór til Írisar og co. um helgina og hefur gengið svakalega vel með drenginn-þrátt fyrir smá Afghan hvolpa ofvirkni og uppátækjasemi :) hahaha!!! Hann er að bræða alla á heimilinu og alla sem koma í heimsókn að sjálfsögðu! Enda ekkert skrýtið-hann er algjör hjartabræðari (sérstaklega þegar hann hagar sér vel...) haha :) Apollo Papillon er búinn að taka Aldo að sér og passar hann voðalega vel.

Kiara fór að heiman í gær til hennar Ingibjargar. Þeir sem ekki vita hver Ingibjörg er þá ræktar hún Shih tzu hunda og Poodle og er Kiara fyrsti Afghaninn á heimilinu :) Það er búið að ganga svakalega vel með dömuna og fittar hún vel inn í hundalífið á heimilinu.

Safír hjartaknúsari fer á morgun til sinna eigenda en þau eru að rækta persnerskar kisur. Þannig að það verður nóg að gera hjá Safír við að stríða þessum kvikindum. Annars gekk svakalega vel hjá þeim um daginn þegar hann fór í aðlögunarheimsókn en hann lagði sem með þremur voða sætum læðum og hafði það gott :) Cavalierinn á heimilinu tók honum svaka vel og fannst hann frekar flottur gæi.

Nala (á líklega eftir að heita það) fer til eigenda sinna líklega um næstu helgi og fer í aðlögunarheimsókn í vikunni þannig að þetta er allt að gerast.

Glói litli besta skinn er ekki enn kominn með heimili enda hef ég nú ekkert verið að auglýsa drenginn neitt sérstaklega. Honum er velkomið að vera hérna heima þar til hann finnur sinn fullkomna eiganda :) Hann er bara svo yndislegur þessi prins!!! Tými honum eiginlega ekki...;) En auðvitað ef hann finnur hinn eina sanna og fullkomna eiganda þá fær hann að yfirgefa ömmu sína.

Svo verður prinsessan hennar mömmu/ömmu sinnar hún Díva eftir hérna :) Það verður því nóg að gera næstu mánuði í að ala hana upp og umhverfisþjálfa! Ég breytti um nafn á henni í ættbók og heitir hún Affietude Standing in the Spotlight þar sem hitt var of langt! Ég er ekki frá því að ég sé jafnvel bara hrifnari af þessu nafni :)

En jæja...ætla að láta þetta gott heita í bili og leyfa ykkur að kíkja á 8 vikna myndirnar af gormunum :)
http://picasaweb.google.com/auja83/8Vikna8Weeks

Hvernig líst ykkur á?

Kveðja, Auja, Chelsea og Afghan ormarnir fjórir.
Auður Sif Sigurgeirsdóttir
7 athugasemdir

Lion King hvolparnir orðnir 7 vikna :)

26. maí 2008 klukkan 19:24
Halló halló! Í gær áttu gormarnir mínir afmæli og urðu 7 vikna gamlir! Tíminn er búinn að líða allt of hratt og mér finnst eins og það séu svona 2 vikur síðan þau fæddust!

Ég og Ásta tókum myndir af þeim í gær í góða veðrinu og finnst mér þær bara hafa heppnast ágætlega að mörgu leyti. Sumir hefðu mátt haga sér betur...:) hehe Nefnum engin nöfn! Endilega kíkið á kvikindin!
http://picasaweb.google.com/auja83/7Vikna7Weeks

Ég er búin að velja mína dömu og mun hún bera nafnið Affietude Can You Feel the Love Tonight og vera kölluð Díva dags daglega :) Hún er s.s. golden black masked tíkin :)

Þau verða svo öll bólusett núna á miðvikudaginn og skoðuð gaumgæfilega af dýralækni! Vona svo innilega að allt komi vel út.

En jæja...ætla ekki að hafa þetta lengra. Ég er bara heima í dag, lasin :( Er með kvef, hálsbólgu og hósta...voðalega gaman þegar maður er nýbyrjaður í nýrri vinnu!!! Ohhhhh!!!!!!!!!!!!

Jæja...endilega verið dugleg að kommenta :)
Auður Sif Sigurgeirsdóttir
8 athugasemdir

Man.United Evrópumeistari og nýjar myndir af krúttunum :)

23. maí 2008 klukkan 22:33
Jæja! Þá er ég loksins búin að setja inn nýjar myndir af litlu yndunum hennar ömmu sinnar :) Þau stækka og stækka með hverjum deginum sem líður og eru öll að þroskast alveg æðislega vel. Þau eru öll svaka montin með sig og labba um eins og herforingjar. Þau eru mjög snögg að vinna úr nýjum aðstæðum og það er vart neitt sem kemur þeim í opna skjöldu. Ég er alveg ótrúlega ánægð með skapgerðina-þau eru bara æðisleg í alla staði og ég er að kafna úr monti! :) Ógeð stolt amma sko! Hér er linkur á myndirnar http://picasaweb.google.com/auja83/55Almost7Weeks

Annars er lítið að frétta. Ég byrjaði að vinna á Hálsakoti á þriðjudaginn og það er bara rosalega fínt. Ég var rosalega snögg að komast inn í vinnuna og þekki nánast alla sem ég er að vinna með-nema örfáar-enda eru sömu fóstrurnar að vinna núna og þegar ég var á leikskólanum. Mér finnst alveg ótrúlega fyndið að þær muna nánast allar eftir mér síðan ég var þarna fyrir rúmum 20 árum síðan! haha :) Ég er svo ógleymanleg! ;) Ég er búin að fara alveg hrikalega seint að sofa alltaf síðan ég byrjaði að vinna og ætla að sofa út um helgina!!! Get ekki beðið. Svo erfitt að venja sig á að fara snemma að sofa en það kemur allt saman í næstu viku. Ætla að vera alveg svaka dugleg þá. Á miðvikudaginn var úrslitaleikurinn í meistaradeildinni-Man.United-Chelsea. Shit ég er búin að vera svo spennt og kvíðin fyrir þessum leik í langan tíma og fannst alveg ótrúlegt að stundin væri runnin upp! Óli frændi minn, sem er Man.Utd. fan í húð og hár eins og ég-bauð mér heim í pizzu og nammi og ég lét mig auðvitað ekki vanta og mætti með Man.United trefilinn minn og fínu húfuna mína syngjandi Glory glory Man.Uniiiiited!:) Ég hef aldrei vitað annan eins leik!!! Ég var gjörsamlega að tapa mér og held að frændfólk mitt hafi fengið aðra sýn á góðu, saklausu, yndislegu og þægu frænkuna sína. Úff :) hehehe Ég og Óli vorum eins og klikkhausar allan leikinn og þegar Van der Sar varði svo síðustu vítaspyrnuna frá Anelka gjörsamlega misstum við okkur og ég lamdi aumingja Óla sundur og saman! En hann fann ekkert fyrir því-enda í sigurvímu DAUÐANS! Ég hélt svo heim eftir leikinn með bros á vör en langaði helst að fara niður í bæ og tjútta eða eitthvað-helst í Man.United outfitti og ulla á alla Chelsea aðdáendur!! haha! En ég ákvað að láta ekki verða af því þar sem ég hefði örugglega verið í lífshættu...:)
Svo tók við enn meira sjónvarpsgláp þegar ég kom heim en úrslitaþátturinn í American Idol var í beinni útsendingu og auðvitað gat ég ekki misst af honum. Hann var búinn um 2 um nóttina og var ég farin að sofa um 3 leytið og þurfti að vakna kl. 7 morguninn eftir til að fara að vinna-úff. En kvöldið var double pleasure þar sem Man.United vann meistaradeildina og David Cook American Idol. Hef haldið með honum alveg frá byrjun-finnt hann GEGGJAÐUR!

Íris kom í dag með Gunnari og mömmu sinni og tók lokaákvörðun um hvaða rakka hún ætlaði að velja. Hún valdi black and tan rakkann sem er geggjað flottur og hefur hann því hlotið nafnið Aldo Cavalli eða Affietude I´m Gonna Be a Mighty King! Innilega til hamingju með valið snúlla-ég veit að þú verður ekki fyrir vonbrigðum með prinsinn þinn. Bloggið hennar Írisar er
www.aldo-cavalli.blogcentral.is endilega kíkið á drenginn! Ég ætla að reyna að taka uppstillimyndir af þeim um helgina og set þær inn um leið og þær eru tilbúnar :)

Hvað er fleira í fréttum? Jú-Berglind systir mín er ólétt af sínu öðru barni og á að eiga í nóvember :) Auja frænka er ekkert smá spennt að fá 4. frænkubarnið í heiminn! Innilega til hamingju með bumbubúann Berglind og Víðir!

Í dag hætti ég í vinnunni um 12 þar sem jarðarförin hennar Ástrósar, mikillar vinkonu fjölskyldunnar, var í dag. Ástrós dó í síðustu viku úr krabbameini sem hún hafði glímt við í rúmt ár. Hún var yndisleg kona og var okkur fjölskyldunni mjög kær. Við kynntumst henni að sjálfsögðu í gegnum hundana fyrir næstum 20 árum, en hún átti tvær Labrador tíkur frá okkur-þær Rympu Rós og Nótt. Útförin var virkilega falleg en nokkrar stelpur úr unglingadeildinni stóðu heiðursvörð fyrir utan kirkjuna með Labradora-alveg yndislegt. Ragnheiður Gröndal söng einsöng og athöfnin var svo falleg.  Ég sendi fjölskyldu og vinum Ástrósar mínar innilegustu samúðarkveðjur.

Jæja...ætla ekki að hafa þetta lengra enda er þetta orðin all svakaleg langloka!!! :) Auja-over and out!
Auður Sif Sigurgeirsdóttir
8 athugasemdir

5,5 vikna myndir :)

18. maí 2008 klukkan 01:36
Jæja! Loksins er ég búin að setja myndirnar inn á myndasíðuna þeirra! Endilega kíkið http://picasaweb.google.com/auja83/55Vikna55Weeks

Kveðja, Auja, Chelsea og skaðræðin 6 sem voru ekki jafn dugleg að standa á þessum myndum eins og þegar þau voru 4 vikna og enn saklaus...hehehe :)
Auður Sif Sigurgeirsdóttir
4 athugasemdir

Affietude Lion King hvolparnir

16. maí 2008 klukkan 23:14
Sæl veriði. Vil bara byrja á því að óska öllum Man.United stuðningsmönnum (sjálfri mér líka) innilega til hamingju með enska titilinn!!!!! Bara snilld og ekkert annað en tææææær snilld! Svo er bara að taka Meistaradeildina á miðvikudaginn kemur! :) Glory glory Man.Uniiiiiited! Glory glory Man.Uniiiiiiited :) 

Ég veit að ég er búin að vera léleg að blogga en mig langaði bara að bíða með að blogga þangað til ég væri með myndir til að sýna ykkur. Því miður er það ekki raunin eins og er, því Ásta tók myndirnar á sína vél og er ekki ennþá búin að setja þær inn á tölvuna. Þannig að ég bíð bara þolinmóð eftir myndum :) Við tókum s.s. standimyndir af herskaranum í gær og það gekk sko ekkert allt of vel enda eru þessir ormar orðnir algjörir skæruliðar!!!!! Hehehehe :) Þeir voru sko ekki á því að standa fallega fyrir ömmurnar sínar og tók það oftar en ekki nokkrar tilraunir að fá svona ágætis mynd af þeim. En þið fáið vonandi að sjá þær á morgun. Vona að þær verði komnar inn þá.

Ég er búin að ákveða nöfn á ormana en samt sem áður ekki alveg búin að ákveða hver fær hvaða nafn. Það er er reyndar svolítið síðan ég ákvað þemað en Sóley systir kom með þá frábæru hugmynd að hafa Lion King þema og ég ákvað svo að hafa þemað aðallega tengt lögunum úr myndinni. Nöfnin verða s.s. eftirfarandi:

Strákar:
Affietude Hakuna Matata
Affietude I´m Gonna Be a Mighty King
Affietude King of Pride Rock
Stelpur:
Affietude Can You Feel the Love Tonight
Affietude It´s Magic Everywhere
Affietude Queen of Pride Rock

Hvernig líst ykkur á? :) Ég er rosalega sátt við þetta þema og nöfnin. Finnst þau mjög töff.

Hvolparnir eru að þroskast alveg svakalega vel og ég er mjög ánægð með krílin mín. Alveg ofur stolt amma :) Ég gæti horft á þessi kvikindi allan sólarhringinn ef ég hefði tíma til þess. Þeir fengu að fara út fyrir nokkrum dögum og gjörsamlega fríkuðu út! Hlupu um allt og fannst allt bara geðveikt. Voru sko ekki lengi að vinna úr þessum nýju aðstæðum. Við leyfðum Tíbbunum að hitta þá og það gekk alveg rosalega vel og hvolpunum fannst þessir Tíbbargormar frekar forvitnilegir og skemmtilegir :) hehehe Tíbrá er aðal leikskólakennarinn á bænum og vill helst alltaf koma með þegar við erum að fara til þeirra. Þeir eru orðnir nánast jafn háir og Tíbrá núna þessir litlu gormar. Ég get svo svarið það að maður horfir nánast á þá stækka! Ég er rosalega ánægð með skapgerðina í þeim en þeir eru alveg ótrúlega mannelskir, montnir og kátir hvolpar. Ef maður situr hjá þeim eru þeir ekki lengi að hrúgast í fangið á manni og troða sér ef þeir komast ekki fyrir. Algjör yndi!

Annars er lítið að frétta fyrir utan hvolpafréttir enda snýst lífið aðallega um þá þessa dagana. Ég byrja að vinna á leikskólanum á þriðjudaginn næsta :) Hlakka ekkert smá til. Ég er búin að vera rosalega dugleg í ræktinni undanfarna mánuði og er orðin gjörsamlega háð því að fara núna. Verð að fara reglulega!!! Love it! Er orðin algjör massaköggull...hmm....eða þannig ;) hehehe
Ég kláraði prófin síðasta þriðjudag og held að þau hafi bara gengið ágætlega. Er ekki búin að fá nema eina einkunn sem var 8,5. Hugsa að hinar verði ekki alveg jafn háar! hehehe :) En hver veit...kannski verð ég heppin :)

Síðasta föstudag skelltum við Ásta, Binni, Anna Björg og Halldóra okkur á lokahóf HSÍ á Broadway og skemmtum okkur bara konunglega! Ekkert smá gaman að fara og tjútta aðeins við Sálina enda komin nokkur ár síðan það var síðast gert.
Svo var aðalfundur HRFÍ haldinn í gær og var mjög málefnalegur og vel sóttur.

En jæja...ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni. Vonandi verða komnar inn myndir á morgun!

Auja-over and out!
Auður Sif Sigurgeirsdóttir
4 athugasemdir

Standimyndir af gormunum :)

07. maí 2008 klukkan 01:05
Jæja! Þá eru komnar standimyndir af öllum gormunum. Ásta og Íris komu í dag og við tókum standimyndir af öllum :)

http://picasaweb.google.com/auja83/4Vikna4Weeks 

Svo setti ég líka inn alls konar myndir af þeim 4 vikna hér:
http://picasaweb.google.com/auja83/4Vikna4Weeks02 

Þeir voru náttúrulega mis duglegir að standa almennilega í lappirnar en okkur fannst þetta bara ganga mjög vel svona miðað við það að þeir eru bara ennþá 4 vikna :)

Ég er rosalega ánægð með þá enda virka þeir mjög jafnir og fínir :) Hlakka til að sjá hvernig þeir halda áfram að þroskast!!!
Auður Sif Sigurgeirsdóttir
10 athugasemdir

Nýjar myndir!!!! :)

05. maí 2008 klukkan 23:31
Jæja...þá er ég búin að setja inn nýjar myndir. Þetta eru myndir alveg síðan 24. apríl og þangað til núna.

Má meðal annars sjá myndir frá fyrsta skiptinu sem þeir fengu að borða. Sést vel á myndunum hvað þeir eru búnir að stækka ótrúlega hratt!! :) Mikið aksjón í þessum hvolpakassa og sumum finnst mjög skemmtilegt að pota í hina og vekja þá þegar þeir eru sofandi. Litlu frænkubörnin mín Bryndís, Freyja og Hrafnkell, eru nánast daglegir gestir og finnst frekar gaman að skoða hvolpana enda rosalega gott fyrir þá að venjast börnum :)

En jæja..ætla ekki að hafa þetta lengra í bili. Ætla að reyna að taka uppstilltar myndir af þeim í vikunni (hægara sagt en gert). Er byrjuð að æfa þá að standa á borði og svona. Reyna að gera þá örugga áður en ég fer að gera einhverjar kröfur til þeirra.

En hér eru myndirnar:
http://picasaweb.google.com/auja83/AfghanHvolpar24441AfghanPuppies24445 

Njótið vel :)
Auður Sif Sigurgeirsdóttir
3 athugasemdir